







Those who do not believe in magic will never find it
Roald Dahl

Um mig
Ég er 52 ára Arnarfirðingur sem býr í Reykjavík. Náttúran hefur alltaf verið mitt uppáhald; ég dreg orku & innblástur úr fjöllum, fjörðum og hafi. Ég er hvatvís & mjög forvitin, eiginleikar sem sjást á vinnubrögðum mínum & listsköpun.
Ég hef haldið nokkrar einkasýningar & var fyrsta sýningin mín, Á milli fjalls & fjöru haldin í Gamla skólanum á Bíldudal 2013. Allt í plati var haldin í Litla galleríi í Hafnarfirði 2022 & þar var einnig sýningin Plötulistin(n) árið 2025. Nýjasta sýningin mín, 10 dagar í Sundstræti verður sýnd í Hamraborg Ísafirði 2026. Auk einkasýninga hef ég tekið þátt í nokkrum samsýningum & átt samstarf við aðra listamenn og hefur það gefið mér tækifæri til að þróa áfram myndmál & hugmyndir.
Ég hef gefið út tvær bækur, Andlit fjarðar, 2019 sem samanstendur af portrettum af Arnarfirðingum & Í upphafi var leir, 2024, sem er ljósmynda- & ljóðabók.
Ég leita sífellt nýrra verkefna & samstarfs. Verk mín leitast við að segja sögur fólks & staða með hlýju & einlægri nálgun í ljósmyndun og myndlist.
Menntun: Hönnunarbraut Iðnskólans í Reykjavík 1998 & Ljósmyndabraut Tækniskólans 2012.